tout problčme a sa solution
LAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAANGT síđan!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Vá!!!!!!!!! Hvað það er langt síðan að ég hef tjáð mig hérna....ég er ekki viss um að ég kunni að blogga lengur :S þannig að ég bara bulla e-ð... Maaaaaaaaaaaaaaaarft hefur nú gerst síðan síðast en það stærsta er að ég flutti mig yfir í líffræðina og held ég að ég sé nú loksins komin á rétta hillu. Annars er bara allt gott að frétta...
Hnerrandi panda...Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Alveg sjúklega fyndiðMyndir Myndir Myndir og blogg hugsanlega vćntanlegt...Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Þá er árshátíð verkfræðinnar búin og var bara alveg rosa gaman og voru allir voða fínir og sætir. Ég er ekki í bloggstuði núna svo að ég blogga kannski seinna um hana...en hérna eru allavega myndir sem ég, Sigga, Sóla og Ester tókum. Enjoy
Fyrsta (og kannski síđasta) blogg mánađarins...Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Þar sem það er liðinn slatti tími frá síðasta alvöru bloggi þá er víst kominn tími til (að mati Sólu) að ég hendi inn nokkrum línum hérna. Er nebbla farin að vorkenna þeim sem koma hingað daglega og ekkert nýtt...
Það er svo sem ekki neitt að frétta af mér...annað en að ég er svaka ánægð með nýju íbúðina mína. Get labbað í skolen og svo er þessi íbúð náttla aðeins stærri en hin og ég er komin með þetta fína eldhúsborð
Svo er ofninn búinn að vera í mikilli notkun undanfarna daga...allvega er ég núna farin að elda oftar. Pestókjúllinn hennar Helgu fékk þann heiður að vera það fyrsta sem ég eldað í ofninum. En hérna er uppskriftin og mæli ég með henni...Pestó kjúlli að hætti Helgu
Pestó kjúlli fyrir 5:
5 kjúllabringur (beinlausar)
ein krukka pestó
einn pakki furuhnetur
Setur kjúllabringurnar í eldfast mót og kryddar örlítið með kjúklinga kryddi. Hellir heilli krukku af pestó yfir og dreifir yfir bringurnar. Hellir svo furuhnetum yfir (mér finnst betra að hafa meira en minna). Stillir ofninn á 180-200° og eldar bringurnar í 30-45 mín. Gott er að hafa hrísgrjón og ferskt salat með fetaosti með.
En í gær þá elti ég Daða og vini hans á handboltaleik...Valur á móti Fram og held ég bara að það hafi verið í annað skiptið sem ég fer á handboltaleik á minni tuttugu ára ævi!!!
Ég get nú ekki sagt að ég hafi mikinn áhuga á handbolta en ótrúlegt en satt þá skemmti ég mér bara ágætlega
Svo fór ég að heimsækja Heiðuna mína í nýja húsið í Hafnarfirðinum. Hún var að passa litlu frænku sína sem er algjör rúsína og fékk ég að gefa henni kvöldmatinn sem samanstóð af hálfri skál af eplagraut. Svo seinna um kvöldið komu þær Sigga, Sóla og Hildur og við tókum eitt Scrabble og svo var bara spjallað saman um gamla og góða tíma. T.d. var rifjað upp þegar Sóla og Heiða sungu "I know him so well" í söngvakeppninni í MH.
En hef svo sem ekkert meira að segja en bara bæjó
Nýjustu myndirnar og fleira...Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Ansi langt síðan að ég tjáði mig hérna síðast. En það sem er helst að frétta af mér er að ég er flutt í stúdentaíbúð í Eggertsgötunni og er ég bara svaka ánægð með hana. Hef kannski smá innflutingsboð fyrir útvalda á næstunni...aldrei að vita
Annars eru hérna myndir frá gærkvöldinu:
Ninjafish tónleikar í Hinu húsinu þann 21. feb. '08.
Nökkvi með sín margumtöluðu danssor og Maggi ber að ofan....Enjoy

Smá fréttir um líf KatrínarGuđlaug Katrín Hákonardóttir
Ég er orðin alveg skelfilega löt að blogga hérna...eins og flestir hafa eflaust tekið eftir þá fer færslunum mínum fækkandi með tímanum
En hérna koma "heitustu" fréttirnar af Katrínu....
Pabbi kom í heimsókn um helgina og var svaka fínt að sjá hann. Allavega fékk ég heimagerðan mat sem ég hafði ekki fengið síðan á jólunum

Svo datt ég aldeilis í lukkupottinn um daginn þegar ég fékk stúdentaíbúð...ég er nú ekki enn flutt inn og mun ég sennilega flytja um þarnæstu helgi...en þar sem ég var samningsbundin með gömlu íbúðina mína fram í júní þá hafði ég miklar áhyggjur af því að e-ð vesen yrði að rifta samningnum ef ekki fengist leigjandi strax en svo ákvað Stefanía (stelpa sem er með mér í verkfræði) að skella sér á íbúðina mína þannig að það gekk allt upp og meira segja verð ég alltaf velkomin í gömlu íbúðina mína í kaffi til Stefaníu
En svo verður víst smá innflutingsfatapóker þegar ég flyt inn í nýju íbúðina og var gestalistinn ákveðinn í samráði við Siggu!Á sprengidaginn var mér boðið í saltkjöt og baunir til Daða og familí. Það var nú orðið ansi langt síðan ég hafði smakkað saltkjöt og drakk ég ábyggilega þrjú vatnsglös eftir matinn
Svo í dag þá festi ég kaup á glænýjum síma...allavega er ég svo tækniheft að ég verð örugglega heila viku að læra á hann...þannig að ekki taka það nærri ykkur hef ég svara ekki í símann í vikunni

Annars segi ég bara over and out...
Kveðja Katrín
Myndir og nýtt blogg vćntanlegt...Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Ég er ekki í bloggstuði núna svo að ég nenni ekki að blogga um helgina (enda er hún ekki enn búin). En allavega hérna eru mndir úr grímupartýinu sem ég fór í sl. föstudagskvöld með verkfræðinni.Róleg helgi og Frakkland vann...Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Athugið lesendur góðir...þetta blogg er aðeins sett hérna inn vegna þess að það er víst komið að mér að blogga samkvæmt Helgu...og mig langar til þess að Helga bloggi sem fyrst svo ég verð víst að vinna fyrir því


Vá...hvað þessi helgi er búin að vera mikið chill...Laugardagurinn byrjaði á því að mæta í upptökupróf í tölvunarfræði og var ég búin að biðja alla um að senda mér góðar hugsanir milli klukkan 9 og 12 og veit ég alveg um þónokkra sem gerðu það
Svo fór ég til Grindavíkur með ömmu og Þóru frænku til þess að fara í brúðkaup hjá frænda mínum. Það var nú bara svaka skemmtilegt og voru fín skemmtiatriði. Svo var ég ekki komin heim fyrr en um 11 leytið og fór þá beinustu leið á Celtic og hitti Röggu og Ester. Rétt áður átti ég fyndnasta símtal sem ég hef átt í langan tíma...þegar ég hringdi í Ester og hún sagði eins og ekkert væri eðlilegra "Ég ætla bara að fá mér tvo bjóra og svo keyri ég bara heim!!!"
Svo á sunnudaginn sameinuðum ég og Ester krafta okkar í að gera hinn stórskemmtilega vikuskammt af eðlisfræðidæmum. Og má segja að sunnudagsmorgnar í VR 2 séu að verða að vikulegum viðburði.
Eftir það kom Daði í heimsókn og á meðan við horfðum á leikinn Ísland - Frakkland gerðum við smá díl...þannig að ef Ísland myndi vinna þá ætti ég að baka pizzu en ef Frakkland myndi vinna þá ætti Daði að baka pizzu. En svo var Daði svo niðurbrotinn eftir hræðilega framistöðu íslenska liðsins að ég varð að rétta honum hjálparhönd í bakstrinum...svona er maður nú góður

En Helga mín...núna er víst komið að þér að blogga og reglurnar eru þær að bloggið þarf að vera í letinu ariel, í 12 pkt leturstærð og alls ekki minna en 600 orð og því þarf helst að skila fyrir klukkan hádegi þann 22. janúar.
En hmmm...hver skildi vera hið ónafngreinda eðalkjöt sem commentar á blogg okkar Sólu??? Verðlaun í boði sko
Yes, I am alive...:-)Guđlaug Katrín Hákonardóttir
Jæja, gott fók...ég var farin að vorkenna þeim sem kíkja hingað inn einu sinni á dag (ef ekki oftar) og það er aldrei neitt nýtt hérna. Allavega vona ég núna að þið hafið myndað ykkur skoðun á því hvort sé betra súkkulaði eða kynlíf
Það sem er breytt síðan árið 2007 er að the one and only Helga Kristrún hefur nú yfirgefið landið og er nú að passa börn í Brighton. Finnst hálf skrýtið að hafa hana ekki á landinu...því að núna hef ég engan til þess að væla í
En við stelpurnar erum þó búnar að vera duglegar að hittast og er Sóla búin að stofna hreyfingarklúbbinn Allar á iði...vona að það verði nú e-ð úr því...enda er ég ekki búin að vera nógu dugleg að ná af mér jólanamminu
Svo hittumst ég, Hildur og Heiða heima hjá mér fyrir stuttu og horfðum á Old Boy...að ósk Heiðu. Ég verð að segja að þessi mynd kom mér bara virkilega að óvart...þó að maður þyrfti nokkrum sinnu að taka fyrir augun.
Annars er ég bara ekkert búin að djamma á nýju ári...hmmm...ég vona að ég sé ekki að verða leiðinleg
En æji...ég djammaði svo mikið á síðasta ári að ég ætla að reyna að slaka aðeins á í djamminu...en ætli maður taki ekki eitt danssession með danstríóinu SSK á næstunni...Vá!!!! Hvað það er langt síðan danstríóið hefur látið ljós sitt skína á dansgólfum bæjarins...Úfff...þetta gengur nú ekki lengur!Annars var ég að enda við að horfa á hundleiðinlegan handboltaleik þar sem Ísland tapaði og það er svo sem ekki nema von að þetta sé bara hundleiðinlegt blogg!
En já, ég má ekki gleyma þessu:
Furðufrétt mánaðarins er að Magnús Dige er víst orðinn grunnskólakennari. Það væri nú fróðlegt að prófa að vera fluga á vegg í kennslustund hjá honum

PS! Helga, núna er ég búin að blogga svo nú er komið að þér

PSS! Svo hefði ég ekkert á móti kommentum eða klappi...
PSS! Búið ykkur undir að það geti liðið langur tími i næsta blogg vegna þess að ég er e-ð að þreytast á þessari bloggvitleysu minni.
Annars segi ég bara hafið það gott og munið að bursta tennurnar

